Bæjarins Bestu Pullur !!
17.07.2007 18:10:34 / Selma

HALLÓÓ Lík!

Hæ hæ hæ hæ hæ hæ!!!:D

*Allir sem kíkja enn á síðuna segja hæ*


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.10.2006 12:13:42 / Líney

Ný síða!!

Bara láta vita að þar semþessi síða er eilla dauð að þá er ég og Bryndís komnar með nýja síðu sem er:

http://lineyogbryndis.bloggar.is

Allir að kíkja á henni og endilega setja link á hana hjá sér! :haha:

Líney


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.10.2006 12:05:08 / Líney

KOMST INN!! :D:D




 ÉG KOMST INN Í LÖGGUSKÓLANN !!!

Vííííííííí :haha: :haha:

» 10 hafa sagt sína skoðun

05.10.2006 18:27:29 / Líney

MYNDIR


Búnað setja myndir frá Amsterdam

Þær má finna HÉR

Líney

» 5 hafa sagt sína skoðun

25.09.2006 21:27:07 / Líney

Sex, Drugs And Rock&Roll

Jæja, þá er min mætt aftur á klakann eftir ferð til Amsterdam! :haha:
Byrjuðum á því að fara á hótelið okkar, e-ð hótel sem við pöntuðum af netinu (minniði mig á það að panta aldrei aftur hótel á netinu) sem að indverjar ráku. Pinku, ogguponsu lítið hótel og vorum við á efstu hæð og það var enginn lyfta heldur bara fáránlega brattir stigar alla leið upp ...en við gerðum nu bara gott úr því! :haha:

Min hélt að við værum bara að fara í svipað veðurfar og er her heima þannig að ég tók bara með mér peysur og buxur en neeeeeiii, viti menn...það var yfir 20 gráður allan tíman og min að stikkna eins og grillaður kjúlli á teini...sem þýddi aðeins eitt...VERSLA!!! SHIBBÝ!! :haha:

En ég get nu ekki sagt að ég hafi verið "in love" af þessari borg....marr var bara nánast "high in the sky" á að labba um borgina því að marr andaði svo miklum hassreyk að sér, og svo voru bara fullt af gæjum að labba upp að manni að bjóða manni hitt og þetta dóp...og ég bara var þarna litla saklausa stelpan fra litla Íslandi inn í miðri stórdópborg....mér stóð nu ekki á sama að labba þarna um sko!
Þetta var þannig að ef að þú fórst á kaffihús og pantaðir t.d heitt kakó að þá var spurt hvort að marr vildi það með eða án hass....það var allt með hassi þarna...hasshlaup, hass sleikjó, hasskökur...hass,hass, hass,,,eg bara atti ekki til orð! 8|

...og eigum við að tala um Hórurnar eða ??? JESÚS MINN ALMÁTTUGUR OG ALLIR HANS LÆRISVEINAR!!
Það voru bara gellur...eða ég meina "gellur" sem stóðu nánast naktar út í gluggum sem voru bara ein og búðar gluggar og voru eitthvað að dilla sér...ekki beitn aðlaðandi! ...og við erum að tala um það að sumar stelpurnar voru kannski bara rétt um 18 ára gamlar! 8| Svo er litið á vændi þarna bara eins og hverja aðra vinnu...og sumar af essum stelpum eiga kannski kærasta heima! Get ekki ýmindað mér að þeir fá mikið frá þeim...þær hljóta að vera uppgefnar eftir vinnuna! HVAR ER SJÁLFSVIRÐINGIN?!?!?!?

Svo hitti eg Koen vin minn á laugardaginn og fór hann með mig um allt og sýndi mér margt og mikið...ekkert smá gaman að hitta hann aftur ..ég va ralveg í skýjunum! :haha: Svo er hann einmitt að koma til íslands í desember til að heimsækja mig....ja...bara MIG....ekki þig Hlíf og ekki þig Kolla....hahahaha...segi sonna ;)
Ætla með hann í bláa lónið, gullfoss og geysi, jöklaferð, hestbak og margt margt fleirra.....vííííií...get ekki beðið! :haha:

Svo er ég að fara í valnefndarviðtalið í lögguskólanum á miðvikudaginn....eins gott að allar essar óbeinu reykingar af hassi hafi ekki gert mig klikkaðri en ég er...hehehe :haha:

En jæa, þetta er orðið gott...kem með myndir fljótlega! :haha:

og já...

HK- ÍBV á morgun Í Digró Kl. 19:00
... vei vei vei :haha:

Líney


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.09.2006 16:05:01 / Líney

Við erum ekki ódauðleg

Við erum ekki ódauðleg..
Ég mun aldrei gleyma því, hversu svalur mér fannst þú vera, þegar þú þeyttist eftir Reykjanesbrautinni á 160.kílómetra hraða á klst, á nýja bílnum þínum, sem þú fékkst daginn áður, ásamt ökuskírteininu. Það var eins og brautin hefði verið sérsniðin fyrir þig. Það breytti engu þótt myrkrið væri skollið á og brautin rennisleip, eftir rigningu dagsins.
Þú varst Sjúmakker Íslands og við fylgdumst með þér af aðdáun og áttum ekki orð yfir það, hversu fimur okkur fannst þú vera á bak við stýrið. Ég sem er vanur að nota öryggisbelti, lét ég bara hanga niður með sætinu. Mér fannst algjör óþarfi að spenna það á mig, því mér fannst ég svo öruggur með þér í bíl. Það átti við um okkur öll, sem vorum með þér í bílnum. Ljósastaurarnir þeyttumst framhjá og manni fannst eins og það væri bara einn langur ljósastaur á Reykjanesbrautinni, því þú ókst svo hratt. Ég man að stelpurnar skríktu af gleði, því þeim fannst þú svo svalur og ég fann það á mér, að þær ætluðu allar að “negla” þig í lok ferðar. Ég horfði á þig öfundsjúkur, því þú bjóst við svo mikla kvennhylli.
Djöfull get ég ekki beðið eftir því að fá bílprófið, því þá skulu þær allar verða mínar. Ég mun aldrei gleyma því þegar ég sá þig í dauðateygjunum, eftir að þú þeyttist út úr bílnum, eftir að hafa keyrt á bílinn, sem kom úr gagnstæðri átt. Eitt lítið augnablik misstir þú stjórn á bílnum og nýji bíllinn ónýtur og Reykjanesbrautin blóði drifin. Ég mun heldur aldrei gleyma stelpunni, sem sat frammí með þér. Fallega brúnhærða stelpan, sem skríkti og hló svo dátt, mun aldrei hlægja aftur.
Þarna lá hún út um allt í bílnum. Hún var eins og kramin fluga, sem var búið að slíta af vængi og fætur. Ég mun aldrei gleyma stelpunum, sem sátu aftur í með mér. Þær lifðu af, en munu aldrei lifa aftur eðlilegu lífi, nema eðlilegt líf sé að liggja á sjúkrastofnun, það sem eftir er og vera grænmetishausar. Ég mun aldrei gleyma gömlu hjónunum, sem voru í bílnum, sem þú keyrðir á. Þau hefðu auðveldlega geta átt 10 - 15 góð ár í viðbót.
Ég mun aldrei gleyma því, hvernig mér leið þarna aftur í. Ég gat mig hvergi hreyft og get það ekki ennþá, því ég er fastur í hjólastól og er algjörlega háður öðrum, því ég get hvorki fætt mig né klætt. Nú mun ég aldrei fá bílprófið, sem ég þráði svo heitt.... né kvennhyllina.
Ef þú heldur að þetta sé allt, þá er ég bara rétt að byrja. Hvað með móður þína og föður, sem elskuðu þig svo heitt? Hvað með systkini þín, sem dáðu þig og horfðu upp til þín? Hvað með ömmu þína og afa, sem voru svo stolt af barnabarninu sínu? Hvað með alla vini þína, sem gátu varla verið án þín? Ertu tilbúinn að steypa öllu þessu fólki í sorg, sem er jafnvel óyfirstíganleg? Hvað með ættingja allra hinna, sem þú stefndir í hættu og myrtir? Hvernig heldur þú að það sé að vera viðstaddur jarðaför síns eigins barns?
Hvernig heldur þú að það sé að koma í heimsókn á sjúkrahúsið, þar sem barnið þitt liggur, með næringu í æð og í dái, og á aldrei möguleika aftur á eðlilegu lífi? Hvernig heldur þú að það sé að þurfa að fæða, klæða og skeina barninu sínu, langt fram á fullorðinsaldur? Hefði ekki bara verið betra að keyra á löglegum hraða eða var “kúlið” alveg að drepa þig? Það gerði það reyndar á endanum.
Höf. Garðar Örn Hinriksson --
Segjum
Stopp !--


En ja...varð að setja etta hér inn! Svo er það bara Amsterdam á Morgun.....yeah Baby :haha:

Líney Besta ;)

» 3 hafa sagt sína skoðun

20.09.2006 12:40:41 / Líney

Vei Vei Vei



AMSTERDAM Á MORGUN!!!


VÍÍÍÍÍÍ :haha:

SKEMMTIÐ YKKUR Á KLAKANUM!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

11.09.2006 12:04:09 / Líney

Frí Pólís

Jæja...fékk bréf frá löggunni um daginn með einkununum! Náði essu bara nokkuð létt :haha:

Fékk tímasetningu á viðtalið mitt sem verður 27.september kl. 13:40 ...eins gott að marr segi eitthvað af viti þar! 8)

Fer svo til Amsterdam Eftir 10 daga!...vííííií...það verður fjör! :haha:

Svo vorum við að koma frá Akureyri...urðum í 2.sæti! Unnum FH og KA en töpuðum fyrir Haukum! Ágætt Bara :haha:

Fórum svo á geggjað ball með Sálinni þar sem sumir voru aðeins skrautlegri en aðrir!

11. September í dag....5 ár síðan árásirnar á Bandaríkin voru....finnst það hafa verið í gær þegar ég var að labba í 10-11 og bekkjarbróðir minn kom hlaupandi til min og sagði mér etta!! Fljótt að líða!

Jæja..læri læri læri....

Blessó

Líney

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.09.2006 12:12:59 / Líney

Háskóli, Háskóli, Háskóli!


Jæja þá er mar búnað mæta í fyrsta tímann í Háskólanum! Verð að viðurkenna að mér finnst það soldið skrýtið! 8|

Mætti klukkan 10 í morgun í sal 1 í Háskólabíó og stóður þar 4 kennarar sem allir virtust hafa lesið yfir sig á sínum háskólaárum...æi þið vitið....gráhærðir prófessorar í brúnum flauels jakkafötum...voða smart! hehe  Jæja...fæ mér svo sæti með Guffu og Láru einhverstaðar í salnum....og mín náttla ekki búnað fjárfesta í bókum eða neinu, fengum námsáætlun og voða fínerí! Dreg ég fram borðið á sætinu mínu og það er svo lítið að ég átti í erfiðleikum með að halda einu blaði á borðinu!! Hvernig verður etta þegar marr er komin með stílabækur, pennaveski og bækur?? Verður fróðlegt að vita!
Leist samt ágætlega á kynningu nemendafélagsins....eina sem ég heyrði var bjór, mígandi fyllerí, frítt fyllerí, nóg af bjór, allt brjálað og BJÓR!! Lýst VEL á það!! :haha: ...en þá kemur auddað babb í bátinn að það er allt yfirleitt á föstudögum og við eigum oftast leik á laugardögum þannig það er nánast bara off....já, hvers á marr að gjalda??? hehe :)

Leist samt ekkert á þegar hann sagði að marr þyrfti að lesa helst 15 klst á viku fyrir aðeins eitt fag.....mun marr breytast í tímabundið nörd í háskólanum??

Jæja...nóg um háskólann.....akureyri næstu helgi og minns getur ekki beðið!! :D:D:D

Líney Háskóla Nörri ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.08.2006 13:33:38 / Líney

Sumir er náttla bara ekki í lagi!

Vá...ég var að lesa bæði á mbl.is og í mogganum í morgun að kona í peking hafi lent í árekstri þegar hún var að taka Chuahuahua (skrifar mar etta ekki sonna :) ) hundinn sinn í ÖKUTÍMA!! Sagði hann hafa svo mikinn áhuga á því! Hvernig veit hún það....þetta er hundur! Ætli hún hafi virkilega haldið að honum tækist etta....þetta dýr er með heila á við maísbaun mundi ég halda! Fólk getur verið svo klikkað að það er náttla bara ekki eðlilegt! :lol:
Svo var ég að lesa að 17 ára danskur strákur hafi dáið þegar hann fékk eldingu í sig þegar hann var að keppa í fótbolta!! Það var alveg heiðskýrt en bara eitt svart ský á himninum!! Er sumum bara ekki ætlað að lifa eða?? Ég hélt alltaf að eldingum slegi niður í það sem er hæst í lofti....ég trúi ekki að hann hafi verið sona stór!? Pæliði í því...eitt ský....þetta er svona eins og í teiknimyndunum....alveg heiðskýrt en bara eitt ský og einvher fær eldingu í sig!! Skrítið :|   Greyið strákurinn samt og fjölskylda hans.....lífið er ekki alltaf sanngjarnt! :(

En jæja...ætlað halda áfram að vera veik heima...það er nattla svo gaman....eða þannig :frown:

Líney :)

» 3 hafa sagt sína skoðun

24.08.2006 16:35:58 / Líney

Líney Lögga!!

Vill koma með smá tilkynningu hérna....en ég, Líney,


NÁÐI

 LÖGREGLUPRÓFINU!!!!



Já krakkar mínir...ég eilla trúi essu ekki....er etta virkilega búið???
En svo er bara að bíða eftir bréfi frá þeim og vita hvenær ég á að fara í viðtal hja valnefndinni! :haha:
Og ef að valnefndin verður með einhvern derring að þá get ég bara farið að vinna sem lögga því ég náði prófinu!! :haha:

En jæja...ætlað farað slappa af er alveg búin á því !!

Líney Lögga :haha:



» 11 hafa sagt sína skoðun

20.08.2006 20:15:41 / Líney

Fáránleg Nöfn !!

 Jæja, hvað segiði gott kisulórurnar mínar ??? ;)

Djöfull erum við búnar að vera lélegar í blogginu!(og þegar ég segi við meina eg þið að sjálfsögðu) hehe :haha:

Mín er bara búnað vera að læra í allan dag...geggjað dugleg 8)

En svona á milli þess sem ég var að læra að þá fór ég að vafra um á netinu og rakst inn á síðuna hja mannanafnanefnd og fór að skoða nöfn sem að hún hefur hafnað...og þvílíkt og annað eins! Að sumum foreldrum detti í hug að svo mikið sem íhuga að skíra barnið sitt sumum nöfnunum sem voru hafnað!!

Hér eru nokkur dæmi :

  • Finngálkn
  • Fryolf
  • Ismaíl
  • JÁRNSÍÐA
  • konstantínos
  • Kosmo
  • Reginbald
  • Tímótheus
  • Vídó
  • Kap
  • Lárenzína
  • DÚNHAUGUR
  • Kort
  • Múli
  • Sólimann
  • Sæby
  • Trevenen
  • Zeppelin
Hahahahahahahaha........hvað er að fólki!

Hverskonar foreldrar vilja skíra barnið sitt Járnsíða eða Dúnhaugur!! hahahahaha :lol:

Yrðuð þið sátt ef að þið munduð heita eitthvað af þessum nöfnum??

Ekki ég allavega!

Fáránlegt alveg....

En eg er þotin...

Blessó...


Líney Dúnhaugur Járnsíðudóttir



» 4 hafa sagt sína skoðun

07.08.2006 18:56:31 / Líney

Myndir og Video

Jæja Krakkar mínir :haha:

Þá er ég búnað setja myndirnar frá Salamanca inn á netið og eru þær hér til vinstri undir Salamanca 2006 *NÝTT* !!

Svo er ég líka búin að setja nokkur Video inn líka og þau eru einnig að finna hér til hliðar undir linknum Salamanca Videos!! ;) ...Á samt eftir að setja fleirri inn! :haha:

Njótið vel ;)

Líney a.k.a Lime a bean ! ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.08.2006 13:58:09 / Líney

Komnar á klakann !!

Þá erum við skvísur komnar heim á klakann.....ekki alveg sáttar því okkur langar svo að vera lengur! :cry: Við vorum mikið að spá í að missa "óvart" af flugvélinni...hehehe ....en höfðum það nu ekki alveg í okkur ! :)

Fyrsta kvöldið koma Jesus vinur okkar fra spani að taka á moti okkur á Erasmus sem er bar sem var mikið stundadur i fyrra og for með okkur á Hostelið okkar sem var i söu götu....sem var bara rétt hjá Hostelinu þar sem hosteleigandinn var myrtur nokkrum dögum eftir að við komum.....heppnar við ad hafa ekki farið á það Hostel!! 8|

Við drukkum á hverju EINASTA kvöldi.....mis mikið samt en alltaf var skellt sér út á djammið! Byrjuðum ÖLL kvöld....og þá meina ég hvert eitt og einasta kvöld á bar sem heitir O´Haras, sem er írskur bar...ekkert smá skemmtilegur! Svo þegar áfengið var farið að renna ljúft í gegnum blóðið var ýmist farið á staði sem heita Camelot eða Irish Rover þar sem að barþjónarnir voru næstum farnir að þekkja okkur með nafni! Þeir vissi allavega hvað við vildum fá að drekka þannig að það var nóg að standa bara við barinn og þá fengum við það sem við vildurm, sem var auðvitað Vodka Og Redbull!! NAMMI NAMM!! :haha:

Fórum eina helgina yfir Til Santa Marta þar sem Jesus á heima, því að þar er svona viku fíesta. Þá eru allir vinahópar í eins lituð'um bolum og voru hann og hans vinir í appelsínugulum bolum þannig við stöllur þurftum að gera slíkt hið sama og keyptum okkur ljótustu appelsínugulu djammboli sem til eru (sem eru samt actually í tísku á spáni....ó Lord), borguðum svo einhverjar 15 evrur og svo var bara frítt Booz það sem eftir var!!! :haha: Fórum m.a. öll vel hífuð í Hoppu kastala og ég er að tala um það að ég hef ekki farið í hoppu kastala síðan ég var svona 10 ára....enda er ég með smá áverka eftir það! hehehe :haha:

En þetta er sona sagan í grófum dráttum.....segi ykkur bara allt þegar þið hittið mig ;)

Svo tók ég FULLT af myndum og FULLT af video sem ég á eftir að setja hér inn...læt ykkur vita þegar það kemur !!

Setningar ferðarinnar:

  • Ég Bilast
  • Nei stelpur,Nei stelpur,Nei Stelpur,Nei stelpur,Nei Stelpur...ÉÉÉÉG BILAST!
  • Tengo culo
  • Guapos
  • Salamaaaaancaaaaa
  • Og ég bara Dó
  • Good Game
  • Góð Saga
  • Soy Una Chica Gorda, Mi Gusta la Mayonesa, Quiero un poquito de sexo porfavor
  • You Quiero ir a la supermarcado y compre un leche y bocadillo (með amerískum hreim)
  • Nerd Alert

Lög Ferðarinnar:

  • Nada De Esto Fue un Error
  • Hips Don´t lie (Shakira Shakira :haha: )
  • Goodbye My lover
  • My neck,my back, lick my pussy and my crack
  • I like big buts and I can not lie....
Höstler ferðarinnar: KOLLA H

Sjúklingur ferðarinnar: KOLLA BLONDIE

Skandall Ferðarinnar: HLÍF

Fyllibytta ferðarinnar: KOLLA H

Stelpur...er ég að gleyma einhverju??? :)

Þannig að týpískur dagur æi okkar lífi út á Salamanca var: Éta, Versla, Sund, Éta, Djamma! :haha:

En allavega...takk stelpur fyrir GEGGJAÐA,ÆÐISLEGA,BRJÁLAÐA, SKEMMTILEGA FERÐ!!! :haha:

Líney spanjoli



» 2 hafa sagt sína skoðun

28.07.2006 14:45:53 / Líney

Hola Guapas!!

Hja hverjum tarf mar eilla ad sofa hja til ad fa blogg fra ykkur....hvad ta comment a faerslurnar ??? 8|

Tad er tynnkudagur i dag sem tydir ad eg geti ekki legid i solbadi og fengid brunku tvi ad ta mundi eg formlega deyja!! 8|

Forum i sundlaugar grill partý i gaer hja einhverjum ríkum spanjola...ekkert sma gaman!! :haha:

Endudum svo a tekíla fylleríi....ég drakk yfir 10 tekíla staup, fullt af bjór og fullt af odrum staupum lika...tetta var SVAKALEGT!!!! :haha:

Hef aldrei séd stelpurnar sona skrautlegar.....Hlíf ákvad nu samt ad vera roleg tetta kvold og held eg ad tad hafi verid god akvordun tvi ad hun turfti ad passa daldid upp a okkur...serstaklega hana Kollu H....Tetta var sona sagan af Hlíf og Byttunum trem!! hehehe ;)

Vid erum ad tala um tad ad vid vorum tad skrautlegar ad kolla fann tekíla staupglas í veskinu sínu i morgun og risa flosku af tómatsósu!!! WHAT ???Hahahahahahahahaha :D ....svo voru franskar út um allt"!! hehehe... og tegar eg aetladi heim inn i herbergi i gaer ta endadi eg einhvern vegin upp a taki....tetta var alveg rosalegt!! hehehhe :lol: No more tekíla for me plís!! 8)

Svo erum vid ad vinna i sakamali herna......tad er MORDINGI i gotunni okkar !!!!!! 8| Ja tid lasud rett....eigandin af Hosteli sem vid aetludum kannski ad vera a sem er i somu gotu og okkar hostel (er 100 m fra okkur) var kyrt og stungin til bana fyrir 4 dogum og sa sem gerdi tad gengur laus!! Vinkona Fransisco vinar okkar var i herberginu ska a móti tar sem hun var drepinn og tegar Fran for til hennar til ad hjalpa henni med dotid sitt ut ad ta sa hann inn i herbergid og tad var blod ut um ALLT!!! Ogedslegt!!!  8|

En jaeja....bunad verad synda eitthvad her uti og sonna...og buin med íslensku bokina sem eg turfti ad lesa fyrir logguprofid :D Bara allt ad gerast ! :)

Veridi nu duglegar ad kommenta sma fyrir mig herna svo ad eg viti nu ad tid seud a lífi 8)

Svo er tad bara ísland a midvikudaginn og handbolti....get ekki bedid eftir ad komast a aefingu!!!! :haha:

Adios guapas y hasta pronto ;)

Líney Spanjoli


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 45
Dagatal